Stykkishólmspósturinn
21. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 20. október 2006
KR - Snæfell í beinni
Það er vert að minna þá á sem ekki vita að leikur KR og Snæfells er í beinni textalýsingu á heimasíðu KR


Föstudagur 20. október 2006
KR - Snæfell í kvöld

í kvöld leikur Snæfell sinn fyrsta leik í Iceland Expressdeild karla á þessu leiktímabili.  Liðið mætir KR ingum í DHL höllinni í Reykjavík og mun leikurinn hefjast kl.19:15.  
Fjölmargir munu renna til Reykjavíkur til að fylgjast með og ekki að efa að stuðningsmenn liðsins á höfuðborgarsvæðinu láta sig ekki vanta.  Meira...


Fimmtudagur 19. október 2006
KB banki styrkir Snæfell

KB banki hefur undanfarin ár stutt vel við bakið á Snæfelli sem og annarri félagsstarfsemi í Stykkishólmi.  Síðastliðið þriðjudagskvöld undirrituðu Kjartan Páll Einarsson útibústjóri KB banka í Stykkishólmi, Daði Sigurþórsson formaður körfuknattleiksdeildar meistaraflokks Snæfells og Högni Högnason fyrir hönd yngri flokka Snæfells samstarfssamning fyrir tímabilið 2006-2007. Meira...


Föstudagur 13. október 2006
María setur íslandsmet

María Valdimarsdóttir tók þátt í opna Norðurlandamótinu í sundi í Óðinsvéum í Danmörku í síðustu viku og var þar í 24 manna keppnishópi frá Íslandi.  Meira...


Fimmtudagur 5. október 2006
Igor í Njarðvík

Igor Beljanski sem lék með Snæfelli í fyrra hefur gert eins árs samning við lið Njarðvíkur.  Hann mun leika sinn fyrsta leik með Njarðvík þann 5.nóvember og það vill svo skemmtilega til að þá mun Njarðvík mæta Snæfelli hér heima í Fjárhúsinu.  



Sunnudagur 1. október 2006
Snæfell sigraði B-riðilinn og E-riðilinn

Hildur í hraðaupphlaupi
Leikjum í 1.umferð B-riðils 8.flokks stúlkna lauk í dag í íþróttahúsinu í Stykkishólmi.  Snæfellsstúlkurnar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með glæsibrag og eru því komnar upp í A-riðilinn í næstu umferð.  Strákarnir í 8.flokknum eru líka komnir upp um riðil því þeir unnu sinn riðil á Hvammstanga í dag. Meira...


Laugardagur 30. september 2006
B-riðill í 8.flokki kvenna
Í dag og á morgun leika stelpurnar í 8.flokki B-riðli, 1.umferðina í Íslandsmótinu hér í Stykkishólmi.  Snæfellsstelpunum hefur gengið mjög vel það sem af er.  Úrslit dagsins eru komin. Meira...


Fimmtudagur 28. september 2006
Snæfell úr leik í Powerade bikarnum

Snæfell tapaði í kvöld fyrir Tindastól í 1.umferð Powerade-bikarsins 83-90.  Liðið lék án Sigurðar Þorvaldssonar sem varð pabbi í dag þegar Alda Leif unnusta hans ól þeim frumburðinn.  Þeim var  vel fagnað í upphafi leiks þegar það var tilkynnt í hátalarakerfi Fjárhússins.  Meira...


Síða 72 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



21. maí:
- Útisundlaug lokuð v. viðgerða


24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9


26. maí:
- Hvítasunna