Mánudagur 5. september 2011
Jón Ólafur í landsliðið
Íslenska landsliðið í körfubolta heldur til Kína á morgun og leikur þar tvo æfingaleiki við kínverska landsliðið í boði kínverska körfuknattleikssambandsins. Leikirnir eru liður í undirbúningi Kínverja fyrir Asíuleikanna. Hlynur Bæringsson er sem fyrr í hópnum en þar er einnig annar héðan úr bæ og leikmaður Snæfells sem kemur inn sem nýliði í landsliðið og það er Jón Ólafur Jónsson.
Meira...
Laugardagur 3. september 2011
Góður árangur hjá Snæfelli
Bæði meistaraflokkslið Snæfells tóku þátt í Ljósanæturmótinu í Reykjanesbæ og náðu fínum árangri en mótinu lauk í gær. Stelpurnar urðu í öðru sæti eftir tap 76-84 fyrir Haukum í úrslitaleik. Strákarnir fóru líka í úrslitaleikinn um sigur á mótinu og sigruðu þar lið Grindavíkur í sveiflukenndum spennuleik 84-82.
Meira...
Miðvikudagur 31. ágúst 2011
Snæfellsnesrallý, fjórða árið í röð, um helgina.
Á síðasta ári unnu heimamenn keppnina, þá sigruðu Einar Sigurðsson og Símon Grétar Rúnarsson á Audi Quatro S2 eftir harða baráttu, aðeins munaði 15 sekúndum á efstu bílum í lok ralls.Keppnin í ár samanstendur af þremur leiðahlutum og fer sá fyrsti fram á föstudagskvöld, annar fer fram fyrir hádegi á laugardag og sá þriðji og síðasti eftir hádegi á laugardag. Eftir fyrsta og annan leiðahluta gefst þeim sem dottið hafa út kostur á að gera við og mæta aftur til keppni. Rásröð keppenda verður breytt fyrir hvern leiðahluta eftir stöðu í lok fyrri hluta.Á föstudag verður ekið um Jökulháls, Eysteinsdal og Breið, að því loknu verður viðgerðarhlé í portinu við frystihúsið í Ólafsvík.
Meira...
Miðvikudagur 24. ágúst 2011
Rekstur meistaraflokka Snæfells
Í aðsendri grein ritar Gunnar Svanlaugsson formaður meistarflokka Snæfells að það kosti 24 milljónir að reka meistaraflokkana en fjárhagsstaða sé mjög góð engu að síður.
Lesa má alla greinina hér...
Miðvikudagur 24. ágúst 2011
Shannon McKever bættist í hóp kvennaliðs Snæfells
Shannon McKever er væntanleg í kvennalið Snæfells í körfu og verður með þeim á komandi tímabili. Shannon kemur frá Greenwood, South- Carolina er 22 ára og er 1.83 m á hæð. Shannon spilaði með kvennaliði Lander University og stóð sig með prýði síðasta tímabil með 17.2 stig, 9.8 fráköst og 3.2 varin skot að meðaltali í 31 leik.
Meira...
Fimmtudagur 18. ágúst 2011
Góður árangur Hólmara í golfi
Sveitakeppni GSÍ fór fram 12. - 14. ágúst s.l. og í 4. deild karla tók karlasveit golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi þátt. Árangur var góður því þeir lentu í öðru sæti og fóru því upp um deild.
Meira...
Miðvikudagur 17. ágúst 2011
Skrifað undir við leikmenn hjá Snæfelli
Í síðustu viku voru undirritaðir samningar við leikmenn í meistaraflokkum karla og kvenna hjá Snæfelli. Hafþór Ingi Gunnarsson hefur nú sagt skilið við Skallagrímsmenn í bili og samið við Snæfell.
Meira...
Miðvikudagur 10. ágúst 2011
Unglingalandsmótið á Egilsstöðum
14. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands var haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Það er mál manna að mótið hafi tekist mjög vel og hafi verið mótshöldurum til mikils sóma og ekki skemmdi veðrið fyrir sem lék við keppendur og mótsgesti nánast alla mótsdagana. Keppendur á mótinu voru rösklega um 1300 og með gestum er talið að um 10 þúsund manns hafi sótt unglingalandsmótið að þessu sinni. Árangur á mótinu var góður í mörgum greinum en sjö unglingalandsmótsmet voru sett í frjálsum íþróttum. Næsta Unglingalandsmót verður haldið á Selfossi 2012.
Meira...
Síða 9 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 - 9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85