Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Sunnudagur 27. mars 2011
Snæfell - Stjarnan í kvöld

Fyrsti leikur Snæfells og Stjörnunnar í undanúrslitum Íslandsmótsins verður hér heima kl.19:15 í kvöld.  Liðin unnu sitthvorn leikinn gegn hvort öðru í deildinni, Snæfell vann örugglega hér heima og tapaði jafn örugglega í Garðabænum.  Það verður því án ef hart barist í kvöld og ljóst að Snæfell getur ekki farið með neitt vanmat í þessa viðureign líkt og gegn Haukum. Meira...


Miðvikudagur 23. mars 2011
Koma svo - Snæfell!!

Í kvöld leikur Snæfell mikilvægasta leik sinn til þessa á tímabilinu þegar liðið mætir Haukum hér heima í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitunum.  Það er ljóst að stuðningsmenn Hauka munu fjölmenna um 30 manns eru þegar lagðir af stað með liðinu og svo leggur full rúta af stað kl.16.  Þannig að það er mikilvægt að stuðningsfólk Snæfells láti sig ekki vanta á pallanna í kvöld kl.19. Meira...


Föstudagur 18. mars 2011
Ekki fagurt - en sigur þó

Snæfell sigraði Hauka í kvöld 76-67 með töluverðum harmkvælum og ekki sársaukalaust því Sean Burton meiddist í lok fyrsta leikhlutans og lék ekki meira með.  En sigur er sigur hversu ljótur sem hann er og í úrslitakeppninni skiptir ekki máli hve stór eða glæstur sigurinn er, því það eina sem gildir er að vinna tvo leiki til að komast áfram í undanúrslitin og nú er Snæfell bara einum sigri frá því. Meira...


Föstudagur 18. mars 2011
Baráttan að byrja

Alvaran hefst í kvöld kl.19:15 hjá Íslandsmeisturum Snæfells þegar þeir fá Hauka í heimsókn í fyrsta leik liðanna í 8.liða úrslitum.  Þetta er sú viðureign úrslitanna sem flestir telja úrslitin hvað öruggust þ.e. að Snæfell muni vinna öruggan sigur enda um toppliðið að ræða og það sem lenti í 8.sætinu. Meira...


Mánudagur 14. mars 2011
Að duga eða drepast fyrir Snæfell

Í kvöld mætir Snæfell KR í úrslitakeppninni í Iceland Expressdeild kvenna og það er ekkert annað en sigur í stöðunni fyrir Snæfell, annars er tímabilið búið.  KR vann fyrri leikinn í DHL-höllinni fyrir sunnan og í þessari fyrstu umferð úrslitanna þarf bara tvo sigra, þannig að Snæfellsstúlkur verða að sigra í kvöld hér á heimavellinum kl.19:15.   Meira...


Mánudagur 14. mars 2011
Jón Ólafur bestur

Í dag voru veittar viðurkenningar til þeirra sem sköruðu framúr í seinni umferðinni í Iceland Express deild karla.   Tveir leikmenn úr Snæfelli hlutu viðurkenningar,örvhentu snillingarnir, Jón Ólafur Jónsson sem var kjörinn besti leikmaðurinn og fyrirliðinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson sem var  valinn í úrvalslið umferðarinnar ásamt Jóni. Meira...


Föstudagur 11. mars 2011
Leikdagar klárir - uppfært

Deildarkeppninni í IE-deild karla lauk í gærkvöldi og þá varð ljóst hvaða lið mætast í 8 liða úrslitum.  Snæfell varð sem kunnugt er deildarmeistari og mætir því liðinu sem varð í 8.sæti þ.e. Haukum.  Það þarf einungis tvo sigra til að komast áfram úr 8 liða úrslitunum og því mikilvægt að byrja vel.  Fyrsti leikur Snæfells og Hauka verður föstudaginn 18.mars kl.19:15.  Þá var einnig verið að tilkynna leikdagana í úrslitunum hjá stelpunum.  Þar mun Snæfell mæta KR og fyrsti leikurinn verður á morgun 12.mars í Reykjavík kl.16:00 Meira...


Miðvikudagur 9. mars 2011
Örfáar myndir frá Nettómótinu um helgina

Smelltu á myndina til að skoða!
Eins og gefur að skilja þá er ómögulegt að fylgjast með 10 liðum í einu.. hér eru myndir af nokkrum af þeim á Nettómótinu nýliðna helgi...Væntanlega fleiri myndir sem koma munu inn á snaefell.is Meira...


Síða 11 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18